Nokia 6710 Navigator - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Veldu

>

Forrit > Stj. forrita.

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri

tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða fá þær sendar

sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða nota

aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth. Hægt er að nota

Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp

forrit í tækinu.
Táknin í Stjórnanda forrita sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Java™-forrit

smáforrit

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og

annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með

Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java

Verified™.

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
● Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða

framleiðanda forritsins skaltu velja Valkostir > Skoða

upplýsingar.
Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins skaltu

velja Upplýsingar: > Vottorð: > Skoða upplýsingar.

● Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða

endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu aðeins

endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort upphaflega

uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða öryggisafrit af

öllum hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að

endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja

forritið og síðan setja það upp aftur úr upphaflegu

uppsetningarskránni eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit.

Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að hlaða henni

niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur fyrir forritið

biður tækið þig um að velja aðgangsstað. Þegar .JAR-

skráin er sótt getur notandinn þurft að færa inn

notandanafn og lykilorð til að komast á miðlarann. Þú

getur fengið notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða

framleiðanda forritsins.

Til að setja upp hugbúnað eða forrit gerirðu eftirfarandi:
1. Veldu

>

Forrit > Stj. forrita til að finna

uppsetningarskrá. Að öðrum kosti skaltu leita að

uppsetningarskrám með Skráarstjóra eða velja

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

72

background image

Skilaboð > Innhólf og opna skilaboð sem innihalda

uppsetningarskrá.

2. Í Forritastjórnun velurðu Valkostir > Setja upp. Í öðrum

forritum velurðu uppsetningarskrána til að hefja

uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um

stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án

rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið

viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið

ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í valmyndinni og velur

það.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða

fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja Valkostir >

Skoða notk.skrá.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit

í einu. Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif

á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það virki

ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir

að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.

Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt

að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia

Ovi Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og

setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota

skráastjórnun til að eyða uppsetningarskránum úr minni

tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í

skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.