Nokia 6710 Navigator - Fjarstillingar

background image

Fjarstillingar

Veldu

>

Stillingar > Stjórnandi tækis.

Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna stillingum, gögnum

og hugbúnaði í tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið sendar stillingar fyrir tækið

þitt. Þú getur fengið miðlarasnið og mismunandi stillingar

frá þjónustuveitunni þinni eða upplýsingadeild. Stillingarnar

kunna að innihalda tengistillingar og aðrar stillingar fyrir

mismunandi forrit í tækinu. Mismunandi getur verið hvaða

valkostir eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst af miðlaranum

þegar uppfæra þarf stillingar tækisins.

Umsýsla gagna

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

73

background image

Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja Valkostir >

Miðlarasnið > Valkostir > Nýtt miðlarasnið.
Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá þjónustuveitanda þínum í

stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina eftirfarandi:
Nafn miðlara — Færðu inn heiti stillingamiðlarans.

Auðkenn.nr. netþjóns — Færðu inn auðkenni

stillingamiðlarans.

Lykilorð miðlara — Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn

beri kennsl á tækið þitt.

Aðgangsstaður — Veldu aðgangsstað sem nota á með

tengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú getur

einnig valið að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn sem

þú tengist. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið

Internet sem gerð flutningsmáta.

Heimaveffang — Færðu inn veffang stillingamiðlarans.

Gátt — Færðu inn gáttarnúmer miðlarans.

Notandanafn og Lykilorð — Sláðu inn notandanafnið og

aðgangsorðið að stillingamiðlaranum.

Leyfa stillingar — Veldu til að leyfa miðlaranum að

hefja stillingalotu.

Samþ. allar sjálfkrafa — Veldu ef þú vilt ekki að

miðlarinn biðji þig um staðfestingu þegar hann hefur

stillingalotu.

Sannvottun símkerfis — Veldu hvort nota á http-

sannvottun.

Notandanafn símkerfis og Lykilorð símkerfis — Sláðu

inn notandanafn og aðgangsorð fyrir http-sannvottun.

Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið að nota

Sannvottun símkerfis.

Til að tengjast miðlaranum og taka við stillingum fyrir tækið

þitt velurðu Valkostir > Hefja stillingu.
Til að skoða stillingaskrá valins sniðs velurðu Valkostir >

Skoða notk.skrá.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins með ljósvakaboðum

velurðu Valkostir > Leita að uppfærslum. Uppfærslan

eyðir ekki stillingum þínum. Þegar þú móttekur

uppfærslupakkann í tækinu skaltu fylgja leiðbeiningunum á

skjánum. Tækið er endurræst þegar uppsetningunni er lokið.

Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar

gagnasendingar (sérþjónusta). Gættu að því að rafhlaða

tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en

uppfærslan er ræst.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á

hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel ekki til að hringja

neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að uppfærslunni

lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal

öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.