Notkunarleyfi
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi Suite til að taka
öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt
opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig
gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu
skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það
takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti
og aðeins er hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið
er í tækinu.
Til að skoða leyfin eftir gerð skaltu velja Gild leyfi, Ógild
leyfi eða Ónotuð leyfi.
Til að skoða upplýsingar um leyfi velurðu Valkostir > Um
leyfi.
Fyrir hverja mynd- og hljóðskrá eru birtar eftirfarandi
upplýsingar:
● Staða — Staðan er Leyfi er gilt, Leyfi er útrunnið eða
Leyfi er ekki enn gilt.
● Sending efnis — Leyft merkir að þú getur sent skrána í
annað tæki. Ekki leyft merkir að þú getir ekki sent skrána
í annað tæki.
● Efni í síma — Já merkir að ef skráin er geymd í tækinu er
slóð hennar birt. Nei merkir að viðkomandi skrá er ekki
geymd í tækinu.
Veldu Ógild leyfi > Valkostir > Sækja leyfi í leyfisskjánum
til að gera leyfi virkt. Samþykktu að koma á nettengingu og
verður þér þá beint á vefsvæði þar sem hægt er að kaupa
heimildir fyrir skrána.
Til að fjarlægja notkunarheimildir opnarðu flipann fyrir gilda
lykla eða flipann fyrir lykla sem ekki eru í notkun, flettir að
viðkomandi skrá og velur Valkostir > Eyða. Ef fleiri en ein
notkunarheimild tengist sömu skrá verður öllum
heimildunum eytt.
Umsýsla gagna
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
75
Á hóplyklaskjánum eru sýndar allar skrár sem tengjast
hópheimild. Ef mörgum hljóð- eða myndskrám hefur verið
hlaðið niður með sömu heimild eru þær allar birtar á þessum
skjá. Hægt er að opna hópskjáinn í flipanum fyrir gilda lykla
eða ógilda lykla. Til þess að opna þessar skrár skaltu opna
hópheimildamöppuna.
Umsýsla gagna
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
76