Nokia 6710 Navigator - Venjulegur innsláttur texta

background image

Venjulegur innsláttur texta

merkir hefðbundinn textainnslátt.

og

merkja hástafi og lágstafi.

merkir að

fyrsti stafur setningarinnar er ritaður með hástaf og að allir

aðrir stafir eru sjálfkrafa ritaðir með lágstöfum.

merkir

tölustafi.
Til að skrifa texta með takkaborðinu er ýtt endurtekið á

talnatakkana 2-9 þar til réttur stafur birtist. Hver takki

inniheldur fleiri stafi en þá sem eru prentaðir á hann. Ef næsti

stafur er á sama takka og sá sem þú hefur slegið inn skaltu

bíða þar til bendillinn birtist og slá svo inn stafinn.
Til að fá fram tölustaf skaltu halda takkanum inni.
Skipt er á milli stafagerða (samsetningar há- og lágstafa) með

því að ýta á #.
Algengum greinarmerkjum er skotið inn með því að ýta

endurtekið á 1 þar til greinarmerkið sem á að skjóta inn

birtist.
Sérstafir eru settir inn með því að halda * inni.
Bil er sett inn með því að ýta á 0. Ýttu á 0 ef þú vilt færa

bendilinn í næstu línu.