Nokia 6710 Navigator - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

1. Kveikt eða slökkt er á flýtirituninni með því að ýta tvisvar

snöggt á #-takkann. Þá er kveikt eða slökkt á flýtiritun í

öllum ritlum tækisins.

gefur til kynna að kveikt sé

á flýtiritun.

2. Ýttu á takkana 2-9 til að slá inn orðið sem þú vilt. Ýttu einu

sinni á takka fyrir hvern staf.

3. Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu

staðfesta það með því að fletta til hægri eða ýta á 0 til að

setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * til að skoða

samsvarandi orð í orðabókinni.
Ef greinarmerkið ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú

vilt slá inn ekki að finna í orðabókinni. Orði er bætt inn í

orðabókina með því að velja Stafa, slá inn orðið á

venjulegan hátt (allt að 32 stafir) og velja síðan Í lagi. Þá

er orðinu bætt inn í orðabókina. Þegar orðabókin er full

er elsta viðbætta orðinu skipt út fyrir það nýjasta.

Sláðu inn fyrri hluta samsetts orðs og staðfestu það með því

að fletta til hægri. Sláðu inn seinni hluta orðsins. Ýttu á 0 til

að klára samsetta orðið og bæta við bili.