Nokia 6710 Navigator - Tengiliðir fluttir úr öðru tæki

background image

Tengiliðir fluttir úr öðru tæki

Veldu

>

Stillingar > Símaflutn..

Með símaflutningsforritinu er hægt að flytja efni, líkt og

tengiliði, milli samhæfra Nokia-tækja.
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að flytja úr því.

Ef hitt tækið styður samstillingu er einnig hægt að samstilla

gögn á milli hins tækisins og tækisins þíns. Tækið gerir

viðvart ef hitt tækið er ekki samhæft.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-kort sé í

því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Þegar kveikt er á tækinu

án þess að SIM-kort sé í því er ótengda sniðið valið sjálfkrafa.
Hitt tækið verður að styðja Bluetooth-tengingar.

Flutningur efnis

Gögn sótt úr öðru tæki í fyrsta sinn:
1. Kveiktu á Bluetooth í báðum tækjum.
2. Veldu tækið sem þú vilt flytja efni úr. Tækið biður þig að

slá inn kóða. Sláðu inn kóða (1-16 tölustafi að lengd) og

veldu Í lagi. Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og veldu Í

lagi. Þá eru tækin pöruð.
Í sumum tækjum er símaflutningsforritið sent í hitt tækið

í skilaboðum. Símaflutningsforritið er sett upp í hinu

tækinu með því að opna skilaboðin og fylgja

leiðbeiningunum.

3. Í tækinu þínu skaltu velja efnið sem þú vilt flytja úr hinu

tækinu.

Efnið er flutt úr minni hins tækisins og sett á samsvarandi

stað í tækinu þínu.
Flutningstíminn veltur á því gagnamagni sem er afritað.

Hægt er að hætta við flutninginn og halda honum áfram

síðar.
Samstillt er á báða vegu og því verða sömu gögn í báðum

tækjum. Ef hlut er eytt úr öðru tækinu er honum eytt úr hinu

tækinu við samstillingu. Ekki er hægt að endurheimta hluti

sem hefur verið eytt með samstillingu.
Hægt er að sjá skrá síðasta flutnings með því að velja

flýtivísun á aðalskjánum og Valkostir > Skoða notk.skrá.