Nokia 6710 Navigator - Leiðsagnarforrit fyrir þráðlaust staðarnet

background image

Leiðsagnarforrit fyrir þráðlaust

staðarnet

Til athugunar: Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota

þráðlaust staðarnet innanhúss.
Þau forrit sem notast við þráðlaust staðarnet ganga á

rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar.
Veldu

>

Stillingar > Tenging > St.net.hjálp.

Staðarnetshjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við

þráðlaust staðarnet. Þegar forritið er opnað leitar tækið að

þráðlausum staðarnetum og birtir þau í lista.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
Uppfæra — Til að uppfæra lista yfir tiltæk þráðlaus

staðarnet.

Sía þráðlaus staðarnet — Síar út þráðlaus staðarnet á

listanum yfir fundin netkerfi. Völdu netkerfin eru síuð út

næst þegar forritið leitar að þráðlausum staðarnetum.

Ræsa vefskoðun — Skoða vefinn með aðgangspunkti

þráðlausa staðarnetsins.

Halda vefskoðun áfram — Halda vefskoðun áfram með

virkri tengingu þráðlauss staðarnets.

Aftengjast v. staðarn. — Til að aftengjast þráðlausa

staðarnetinu.

Upplýsingar — Til að sjá upplýsingar um þráðlausa

staðarnetið.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni

á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án

heimildar.
Til að láta leiðsagnarforritið fyrir þráðlaus staðarnet búa

sjálfkrafa til aðgangsstað fyrir valið net þegar þú velur Ræsa

vefskoðun eða Nota fyrir velurðu

>

Stillingar >

Stillingar og Tenging > Þráðl. staðarnet > Prófun

internettengingar > Keyra sjálfkrafa. Einnig er hægt að

nota aðgangsstaðinn með öðrum forritum sem þurfa

þráðlausa staðarnettengingu.
Ef þú velur öruggt, þráðlaust net er beðið um að þú færir inn

nauðsynleg lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn SSID-kóða til

að tengjast við falið netkerfi.
Til að nota þráðlausa staðarnetið sem fannst fyrir

netsímtalstengingu velurðu línuna sem sýnir stöðuna, Nota

fyrir, síðan netsímtalaþjónustu og þráðlausa staðarnetið

sem á að nota.

Tengingar

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

82