![background image](https://i.helpdoc.net/Nokia 6710 Navigator/is/Nokia 6710 Navigator_is082.png)
Leiðsagnarforrit fyrir þráðlaust
staðarnet
Til athugunar: Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota
þráðlaust staðarnet innanhúss.
Þau forrit sem notast við þráðlaust staðarnet ganga á
rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar.
Veldu
>
Stillingar > Tenging > St.net.hjálp.
Staðarnetshjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við
þráðlaust staðarnet. Þegar forritið er opnað leitar tækið að
þráðlausum staðarnetum og birtir þau í lista.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Uppfæra — Til að uppfæra lista yfir tiltæk þráðlaus
staðarnet.
● Sía þráðlaus staðarnet — Síar út þráðlaus staðarnet á
listanum yfir fundin netkerfi. Völdu netkerfin eru síuð út
næst þegar forritið leitar að þráðlausum staðarnetum.
● Ræsa vefskoðun — Skoða vefinn með aðgangspunkti
þráðlausa staðarnetsins.
● Halda vefskoðun áfram — Halda vefskoðun áfram með
virkri tengingu þráðlauss staðarnets.
● Aftengjast v. staðarn. — Til að aftengjast þráðlausa
staðarnetinu.
● Upplýsingar — Til að sjá upplýsingar um þráðlausa
staðarnetið.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni
á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án
heimildar.
Til að láta leiðsagnarforritið fyrir þráðlaus staðarnet búa
sjálfkrafa til aðgangsstað fyrir valið net þegar þú velur Ræsa
vefskoðun eða Nota fyrir velurðu
>
Stillingar >
Stillingar og Tenging > Þráðl. staðarnet > Prófun
internettengingar > Keyra sjálfkrafa. Einnig er hægt að
nota aðgangsstaðinn með öðrum forritum sem þurfa
þráðlausa staðarnettengingu.
Ef þú velur öruggt, þráðlaust net er beðið um að þú færir inn
nauðsynleg lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn SSID-kóða til
að tengjast við falið netkerfi.
Til að nota þráðlausa staðarnetið sem fannst fyrir
netsímtalstengingu velurðu línuna sem sýnir stöðuna, Nota
fyrir, síðan netsímtalaþjónustu og þráðlausa staðarnetið
sem á að nota.
Tengingar
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
82