Nokia 6710 Navigator - Um Bluetooth

background image

Um Bluetooth

Bluetooth-tækni í tækinu virkjar þráðlausar tengingar á milli

tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10 metra (33 feta)

fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-tengingu

til að senda myndir, hreyfimyndir, texta, nafnspjöld,

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

77

background image

minnismiða í dagbókum og til að tengjast við önnur tæki sem

nota Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með

útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það er tengt

við ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö

þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort

öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna veggja eða

annarra rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu.

Til dæmis er hægt að flytja skrár úr öðru samhæfu tæki þó að

það sé tengt við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR

sem styður eftirfarandi snið: Advanced Audio Distribution,

Audio/Video Remote Control, Basic Imaging, Basic Printing,

Device ID, Dial-up Networking, File Transfer, Generic Audio/

Video Distribution, Generic Access, Generic Object Exchange,

Handsfree, (Human Interface Device) Headset, Object Push,

Phone Book Access, Serial Port og SIM Access. Til að tryggja

samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni

skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir

þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum

annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans

og draga úr endingu hennar.