Pörun tækja
Veldu
>
Stillingar > Tenging > Bluetooth.
Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið lykilorð (1-16 tölustafir)
og biðja notanda hins tækisins um að nota sama lykilorð.
Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru með fast lykilorð.
Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar tækin eru tengd í fyrsta
skipti. Hægt er að heimila tenginguna að pöruninni lokinni.
Með því að para saman tæki og heimila tenginguna verður
fljótlegra að koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja
tenginguna á milli paraðra tækja í hvert skipti sem henni er
komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16 tölustafir.
Í ytri SIM-stillingu er hægt að nota SIM-kort tækisins með
samhæfum aukabúnaði.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins
hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum
aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin
er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Tengingar
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
78
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-
stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn
lykilnúmerið til að opna það.
1. Veldu Valkostir > Nýtt parað tæki. Tækið byrjar þá að
leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu. Ef gögn hafa áður
verið send um Bluetooth-tengingu birtist listi með fyrri
leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri Bluetooth-tækjum
innan svæðisins með því að velja Fleiri tæki.
2. Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn
lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið.
3. Til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli tækisins þíns
og annars tækis skaltu velja Já. Til að staðfesta
tenginguna handvirkt í hvert sinn sem tækin reyna að
tengjast skaltu velja Nei. Eftir pörunina er tækið vistað á
síðu paraðra tækja.
Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu Valkostir >
Gefa stuttnefni. Gælunafnið birtist eingöngu í þínu tæki.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo Valkostir >
Eyða. Til að eyða öllum pörunum velurðu Valkostir > Eyða
öllum. Ef tækið er tengt við annað tæki og pöruninni við það
er eytt, er pörunin fjarlægð strax og tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt tæki
velurðu Stilla sem heimilað. Hægt er að koma á tengingu á
milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju þinnar. Ekki
þarf að samþykkja eða heimila tenginguna sérstaklega.
Notaðu þessa stöðu eingöngu fyrir eigin tæki, líkt og samhæf
höfuðtól eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú þekkir og treystir.
Ef þú vilt samþykkja tengingarbeiðni frá hinu tækinu í hvert
skipti velurðu Stilla sem óheimilað.
Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað, t.d. handfrjálsan
Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að para tækið við
aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar leiðbeiningar eru í
notendahandbók aukabúnaðarins. Kveiktu á
hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við hann. Ákveðnar
gerðir hljóðaukabúnaðar tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það
gerist ekki skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki, velja
aukabúnaðinn og Valkostir > Tengjast við hljóðtæki.