Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir
að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu
hleðslutækið
við tækið.
3. Þegar tækið
sýnir að
rafhlaðan er
fullhlaðin
skaltu fyrst
taka
hleðslutækið
úr sambandi
við tækið og síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna með USB-gagnasnúru
sem er tengd samhæfri tölvu.
1. Tengdu USB-gagnasnúruna við USB-tengi tölvu og einnig
við tækið.
2. Fjarlægðu USB-gagnasnúruna þegar rafhlaðan er
fullhlaðin.
Hleðsla með USB er afar breytileg. Í sumum tilvikum getur
tekið mjög langan tíma þar til hleðsla hefst og hægt er að
taka tækið í notkun. Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í
tiltekinn tíma og getur notað tækið á meðan það er í hleðslu.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að
hringja.
Tækið tekið í notkun
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
10