Minniskorti komið fyrir
Notaðu minniskort til að spara minni tækisins. Einnig er hægt
að taka afrit af gögnum í tækinu og vista þau á minniskortinu.
Aðeins skal nota samhæft microSD-kort sem Nokia samþykkir
til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda
staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort sé ekki
hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta
skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á
kortinu.
Geyma skal öll minniskort þar sem börn ná ekki
til.
Upplýsingar um samhæfni minniskorta fást hjá
framleiðanda þeirra eða söluaðila.
Verið getur að samhæft minniskort hafi fylgt með tækinu og
hafi þegar verið sett í það. Ef ekki skaltu gera eftirfarandi:
1. Opnaðu lok minniskortsraufarinnar (1).
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
9
2. Settu
minniskortið
inn í raufina og
láttu
snertiflötinn
snúa niður (2).
3. Ýttu kortinu
inn þar til það
smellur á sinn
stað. Lokaðu
raufinni (3).