Nokia 6710 Navigator - Snið án tengingar

background image

Snið án tengingar

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,

svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á

tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að

hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að

hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að

skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn

lykilnúmerið.
Ótengda sniðið er ræst á fljótlegan hátt með því að ýta á

rofann og velja Ótengdur.
Til að skipta yfir í annað snið skaltu ýta stuttlega á rofann og

velja annað snið.
Þegar kveikt er á ótengda sniðinu eru allar tengingar sem

nota útvarpstíðni lokaðar. Hins vegar er hægt að nota tækið

án SIM-korts og hlusta á útvarpið eða á tónlist. Mundu að

slökkva á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð.