Nokia 6710 Navigator - Lykilorð

background image

Lykilorð

Veldu

>

Stillingar > Stillingar.

Hægt er að velja hvernig síminn notar aðgangsnúmer og

öryggisstillingar í Almennar > Öryggi > Sími og SIM-

kort.
● PIN-númerið (UPIN) sem fylgir með SIM-kortinu (USIM)

kemur í veg fyrir að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi.

● PIN2-númerið (UPIN2-númerið), sem fylgir sumum SIM-

kortum (USIM-kortum), er nauðsynlegt til að hafa aðgang

að tiltekinni þjónustu.

● PUK- (UPUK-) og PUK2-númer (UPUK2-númer) kunna að

fylgja SIM-kortinu (USIM-kortinu). Ef þú slærð inn rangt

PIN-númer þrisvar sinnum í röð ertu beðinn um PUK-

númerið. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi

númer fylgja ekki með símanum.

● Öryggisnúmerið hindrar að síminn sé notaður í leyfisleysi.

Þú getur búið til og breytt númerinu og stillt símann á að

biðja um númerið. Haltu númerinu leyndu og á öruggum

stað fjarri símanum. Ef þú gleymir númerinu og síminn er

læstur þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú getur þurft að

greiða viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu

kann að verða eytt. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia

Care þjónustuveri eða söluaðilanum.

● Þegar útilokunarþjónusta er notuð til að takmarka símtöl

í og úr símanum (sérþjónusta) er lykilorðs útilokunar

krafist.