Heimaskjár
Þegar þú hefur kveikt á tækinu og það er skráð á kerfi birtist
tækið á heimaskjánum og er tilbúið til notkunar.
Ýtt er á hringitakkann til að opna lista yfir síðustu númerin
sem hringt hefur verið í.
Hringt er í talhólfið með því að halda inni takkanum 1.
Til að nota raddskipanir eða raddstýrða hringingu skaltu
halda hægri valtakkanum inni.
Skipt er um snið með því að ýta stuttlega á rofann og velja
nýtt snið.
Tengst er við netið með því að halda inni 0.
Til að breyta heimaskjánum skaltu velja
>
Stillingar >
Stillingar og Almennar > Sérstillingar > Biðstaða og úr
eftirfarandi:
● Þema biðskjás — Veldu þema heimaskjásins.
● Flýtivísar — Bættu við flýtivísum í forrit eða atburði eða
tengdu flýtivísun við skruntakka, allt eftir því þema sem
valið er fyrir heimaskjá.