Nokia 6710 Navigator - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Veldu

>

Stillingar > Stillingar og Almennar >

Öryggi > Vottorðastjórnun.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð til

að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir

heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Flettu til hægri

til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er fyrir

hendi.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru

vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna aðgerða sem fela í

sér sendingu trúnaðarupplýsinga. Einnig ætti að nota þau til

að minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum

hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið

er niður af netinu og settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr

þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu

hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.

Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn

verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð

svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma.

Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki

tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.

Skoða upplýsingar um vottorð —kanna

áreiðanleika

Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar búið

er að kanna undirskrift og gildistíma miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef

tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta að því

og velja Valkostir > Um vottorð. Gildi vottorðsins er

kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum getur birst:
Vottorði ekki treyst — Þú hefur ekki valið að láta neitt

forrit nota vottorðið.

Vottorð útrunnið — Gildistími vottorðsins er liðinn.

Vottorð ekki enn gilt — Gildistími vottorðsins er ekki

hafinn.

Vottorð skemmt — Vottorðið er ónothæft. Hafðu

samband við útgefanda vottorðsins.

Breyta traustsstillingum

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

70

background image

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga

um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri

í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Flettu að heimildarvottorði og veldu Valkostir >

Trauststillingar. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem valið er,

birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:
Symbian-uppsetning: — Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet: — Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita: — Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Java-forrits.

Veldu Valkostir > Breyta trauststillingum til að breyta

gildinu.