Vottorðastjórnun
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Almennar >
Öryggi > Vottorðastjórnun.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð til
að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Flettu til hægri
til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er fyrir
hendi.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru
vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna aðgerða sem fela í
sér sendingu trúnaðarupplýsinga. Einnig ætti að nota þau til
að minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum
hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið
er niður af netinu og settur upp.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr
þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.
Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn
verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð
svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma.
Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki
tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal
athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Skoða upplýsingar um vottorð —kanna
áreiðanleika
Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar búið
er að kanna undirskrift og gildistíma miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef
tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta að því
og velja Valkostir > Um vottorð. Gildi vottorðsins er
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum getur birst:
● Vottorði ekki treyst — Þú hefur ekki valið að láta neitt
forrit nota vottorðið.
● Vottorð útrunnið — Gildistími vottorðsins er liðinn.
● Vottorð ekki enn gilt — Gildistími vottorðsins er ekki
hafinn.
● Vottorð skemmt — Vottorðið er ónothæft. Hafðu
samband við útgefanda vottorðsins.
Breyta traustsstillingum
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
70
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga
um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri
í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Flettu að heimildarvottorði og veldu Valkostir >
Trauststillingar. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem valið er,
birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:
● Symbian-uppsetning: Já — Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.
● Internet: Já — Vottorðið getur sannreynt miðlara.
● Uppsetning forrita: Já — Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Java-forrits.
Veldu Valkostir > Breyta trauststillingum til að breyta
gildinu.