Nokia 6710 Navigator - Uppsetning á tölvupósti

background image

Uppsetning á tölvupósti

Með póstuppsetningu Nokia geturðu sett upp

fyrirtækjapósthólfið þitt, eins og Microsoft Outlook, Mail for

Exchange eða Intellisync og tölvupósthólfið þitt.
Þegar fyrirtækjapósturinn þinn er settur upp gætir þú verið

beðin(n) um heiti miðlarans sem tengist tölvupóstfanginu

þínu. Upplýsingatæknideild fyrirtækis þíns veitir frekari

upplýsingar.

1. Uppsetningin er ræst með því að fara á heimaskjáinn,

fletta að póstuppsetningunni og ýta á skruntakkann.

2. Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð. Ef

uppsetningin getur ekki stillt tölvupóstinn sjálfkrafa,

þarftu að velja gerð tölvupósthólfsins og færa inn skyldar

pósthólfsstillingar.

Ef tækið inniheldur fleiri tölvupóstbiðlara geturðu valið þá

þegar þú ræsir póstuppsetninguna.