Stillingar margmiðlunarskilaboða
Veldu
>
Skilaboð og Valkostir > Stillingar >
Margmiðlunarboð.
Veldu úr eftirfarandi:
● Stærð myndar — Tilgreina skal stærð myndar í
margmiðlunarskilaboðum.
● MMS-gerð — Ef þú velur Með viðvörunum lætur tækið
þig vita ef þú reynir að senda skilaboð sem ekki er víst að
móttökutæki styðji. Ef þú velur Takmörkuð kemur tækið
veg fyrir að þú sendir óstudd skilaboð. Til að geta sett efni
inn í skilaboð án tilkynninga velurðu Allt.
● Aðg.staður í notkun — Veldu hvaða aðgangsstaður er
notaður sem ákjósanleg tenging.
● Móttaka margmiðlunar — Veldu hvernig þú vilt taka á
móti skilaboðum, ef sú þjónusta er í boði. Til að taka
sjálfkrafa á móti skilaboðum í heimasímkerfinu skaltu
velja Sjálfv. í heimakerfi. Utan heimasímkerfisins mun
tilkynning berast um að það séu ósótt skilaboð í
skilaboðamiðstöðinni. Ef þú velur Alltaf sjálfvirk mun
Skilaboð
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
42
tækið sjálfkrafa koma á virkri pakkagagnatengingu til að
sækja skilaboðin bæði innan og utan heimasímkerfisins.
Veldu Handvirkt val til að sækja margmiðlunarskilaboð
alltaf handvirkt eða Óvirk til að loka fyrir móttöku
margmiðlunarskilaboða. Ekki er víst að sjálfvirk móttaka
sé í boði á öllum svæðum.
● Leyfa nafnlaus skilaboð — Hafna skilaboðum frá
nafnlausum sendendum.
● Fá auglýsingar — Taka á móti auglýsingum í formi
margmiðlunarskilaboða (sérþjónusta).
● Fá tilkynningar — Sýna stöðu sendra skilaboða í
notkunarskrá (sérþjónusta).
● Neita sendingu tilk. — Loka fyrir að tækið sendi
skilatilkynningar fyrir móttekin skilaboð.
● Gildistími skilaboða — Veldu hve lengi
skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda skilaboð frá þér
ef fyrsta sending þeirra mistekst (sérþjónusta). Ef ekki er
hægt að senda skilaboðin innan tímafrestsins er
skilaboðunum eytt úr skilaboðamiðstöðinni.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að
fá staðfestingu á því hvort send skilaboð hafa verið móttekin
eða lesin. Allt eftir símkerfinu og öðrum aðstæðum hverju
sinni getur verið að þessar upplýsingar séu ekki alltaf
áreiðanlegar.