Skilaboðalestur
Með skilaboðalesaranum geturðu hlustað á texta-,
margmiðlunar- og hljóðskilaboð og tölvupóst.
Hægt er að hlusta á ný skilaboð eða tölvupóst á
heimaskjánum með því að halda vinstri valtakkanum inni þar
til skilaboðalesturinn hefst.
Hægt er að hlusta á skilaboð úr innhólfinu eða tölvupóst úr
pósthólfinu með því að fletta að skilaboðum og Valkostir >
Hlusta. Ýttu á hætta-takkann til að stöðva lesturinn.
Ýttu á skruntakkann til að gera hlé á lestrinum eða halda
áfram. Flettu til hægri til að hlaupa yfir skilaboð. Flettu til
vinstri til að endurtaka spilun á skilaboðum eða tölvupósti.
Til að fara til baka í fyrri skilaboðin skaltu fletta til vinstri þar
sem skilaboðin hefjast.
Til að sjá skilaboð eða tölvupóst sem texta án hljóðs skaltu
velja Valkostir > Opna.