Nokia 6710 Navigator - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða

Veldu

>

Skilaboð.

Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru

opnuð. Skilaboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða

skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað

tölvupóst verða réttar tengistillingar að vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða.

Ef myndin sem bætt er inn fer yfir þessi mörk gæti tækið

minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.
Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá

þjónustuveitunni. Ef þú reynir að senda tölvupóst sem er yfir

mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin áfram í

möppunni Úthólf og tækið reynir reglulega að senda þau.

Gagnatenging er nauðsynleg til að senda tölvupóst og

endurteknar tilraunir til að senda tölvupóst kunna að auka

kostnað vegna gagnaflutnings. Hægt er að eyða slíkum

skilaboðum í möppunni Úthólf eða færa þau yfir í möppuna

Drög.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

37

background image

1. Veldu Ný skilaboð > Skilaboð til að senda textaskilboð

eða margmiðlunarboð (MMS), Hljóðskilaboð til að senda

margmiðlunarboð sem innihalda eitt hljóðinnskot, eða

Tölvupóst til að senda tölvupóst.

2. Í reitnum Til skaltu ýta á skruntakkann til að velja

viðtakendur eða hóp viðtakenda úr tengiliðalistanum,

eða slá inn símanúmer eða tölvupóstfang viðtakandans.

Semíkomma (;) sem skilur að viðtakendur er sett inn með

því að ýta á *. Einnig er hægt að afrita og líma númer eða

tölvupóstföng af klemmuspjaldinu.

3. Færðu titil tölvupóstskeytisins inn í reitinn Efni. Hægt er

að breyta því hvaða reitir eru sýnilegir með því að velja

Valkostir > Skilaboðahausar.

4. Skilaboðin eru skrifuð í skilaboðareitinn. Til að setja inn

sniðmát eða athugasemd skaltu velja Valkostir > Setja

inn efni > Setja inn texta > Sniðmát eða

Minnismiða.

5. Til að bæta skrá við margmiðlunarskilaboð velurðu

Valkostir > Setja inn efni, skráagerðina eða slóðina og

sjálfa skrána. Til að láta nafnspjald, skyggnu, athugasemd

eða einhverja aðra skrá fylgja skilaboðunum velurðu

Valkostir > Setja inn efni > Setja inn annað.

6. Til að taka mynd eða taka upp hljóð eða myndskeið fyrir

margmiðlunarboð velurðu Valkostir > Setja inn efni >

Setja inn mynd > Nýja, Setja inn myndskeið > Nýtt

eða Setja inn hljóð > Nýtt.

7. Til að setja viðhengi í tölvupóst velurðu Valkostir og

tegund viðhengis. Viðhengi í tölvupósti eru auðkennd

með .

8. Veldu Valkostir > Senda eða ýttu á hringitakkann til að

senda skilaboðin.

Til athugunar: Táknið um að skilaboð hafi verið send,

eða texti sem birtist á skjá tækisins, merkir ekki að

viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein

skilaboð. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð.

Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það.

Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra

tungumála taka meira pláss og takmarka þann stafafjölda

sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Ekki er víst að hægt sé að senda myndskeið sem eru vistuð á

MP4-sniði eða sem fara yfir leyfilega stærð

margmiðlunarboða á símkerfinu.