Til að búa til ný skilaboð velurðu Ný skilaboð.
Ábending: Til að komast hjá því að endurrita skilaboð
sem oft eru send skaltu nota textana í möppunni
Sniðmát í Möppurnar mínar. Einnig geturðu búið til og
vistað þín eigin sniðmát.
Skilaboð inniheldur eftirfarandi möppur:
●
Innhólf — Móttekin skilaboð, fyrir utan
tölvupóstskeyti og skilaboð frá endurvarpa eru geymd hér.
●
Mínar möppur — Raðaðu skilaboðum í möppur.
●
Nýtt pósthólf — Hægt er að tengjast við ytra pósthólf
til að sækja nýjan tölvupóst og skoða eldri tölvupóst án
tengingar.
●
Uppköst — Drög að skilaboðum sem hafa ekki verið
send.
●
Sendir hlutir — Síðustu skilaboðin sem voru send,
fyrir utan þau sem voru send um Bluetooth, eru vistuð hér.
Hægt er að fækka eða fjölga skilaboðum sem eru vistuð í
þessari möppu.
●
Úthólf — Skilaboð sem bíða þess að verða send eru
vistuð tímabundið í úthólfinu, t.d. þegar tækið er utan
þjónustusvæðis.
●
Tilkynningar — Hægt er að biðja símkerfið að senda
skilatilkynningar fyrir send texta- og
margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta).