Nokia 6710 Navigator - Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda

background image

Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda

Samnýting hreyfimynda krefst UMTS-tengingar. Nánari

upplýsingar um þjónustuna, tiltæk UMTS-símkerfi og gjöld

fyrir þessa þjónustu fást hjá þjónustuveitunni.
Til að geta notað samnýtingu hreyfimynda þarftu að gera

eftirfarandi:
● Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir

tengingar á milli einstaklinga.

● Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og

sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú ferð út fyrir

UMTS-þjónustusvæði meðan samnýting fer fram, þá rofnar

hún en símtalið heldur áfram.

● Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og

viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú býður

einhverjum í samnýtingu og tæki viðtakandans er ekki

tengt við UMTS-símkerfi, eða þá að samnýting eða P2P

hefur ekki verið sett upp í því, fær viðtakandinn ekki boðið.

Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti ekki þegið

boðið.