Stillingar símkerfis
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Sími > Símkerfi.
Símkerfisstilling er valin með því að velja Símkerfi og Tvöfalt
kerfi, UMTS eða GSM. Í símkerfaskiptingu skiptir tækið
sjálfkrafa á milli símkerfa.
Ábending: Ef UMTS er valið getur gagnaflutningshraði
aukist en það gæti krafist aukinnar rafhlöðuorku og
minnkað endingu rafhlöðunnar. Ef Tvöfalt kerfi er
valið á svæðum, sem eru nálægt bæði GSM- og UMTS-
símkerfum, getur það valdið því að stöðugt sé verið að
skipta á milli símkerfanna tveggja en það krefst einnig
aukinnar rafhlöðuorku.
Til að velja símafyrirtæki velurðu Val á símafyrirtæki og
Handvirkt til að velja úr þeim símkerfum sem eru í boði eða
Sjálfvirkt til að láta tækið velja sjálfkrafa.
Til að stilla tækið þannig að það gefi til kynna að það sé notað
í örbylgjukerfi (MCN) velurðu Um endurvarpa > Virkar.