Nokia 6710 Navigator - Símtalsflutningur

background image

Símtalsflutningur

Veldu

>

Stillingar > Stillingar og Sími >

Símtalsflutn..
Hægt er að flytja innhringingar í talhólf eða annað

símanúmer. Nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni.
Veldu þá gerð símtala sem á að flytja og úr eftirfarandi

valkostum:
Öll raddsímtöl, Öll gagna- og myndsímtöl eða Allar

faxsendingar — Flytja öll móttekin radd-, gagna-,

myndsímtöl eða faxsendingar. Þú getur ekki svarað

símtölum, einungis flutt þau í annað símanúmer.

Ef á tali — Flutningur innhringinga ef símtal stendur yfir.

Ef ekki er svarað — Flutningur innhringinga eftir að

tækið hefur hringt í tiltekinn tíma. Velja tíma sem tækið

hringir áður en það flytur símtal.

Ef utan svæðis — Flutningur símtala þegar slökkt er á

tækinu eða það er utan þjónustusvæðis.

Ef ekkert samband — Flutningur símtala ef símtal

stendur yfir, ef það svarar ekki eða ef slökkt er á tækinu

eða það er utan þjónustusvæðis.

Til að flytja símtöl í talhólfið þitt velurðu símtalsgerð,

flutningsvalkost og Valkostir > Virkja > Í raddtalhólf.
Til að flytja símtöl í annað símanúmer velurðu símtalsgerð,

flutningsvalkost og Valkostir > Virkja > Í annað númer.

Sláðu númerið inn í reitinn eða veldu Leita til að sækja númer

sem vistað er í Tengiliðir.
Til þess að athuga hver staða símtalsflutnings er flettirðu að

flutningsvalkostinum og velur Valkostir > Athuga stöðu.
Til þess að hætta símtalsflutningi flettirðu að

flutningsvalkostinum og velur Valkostir > Slökkva .