Símtalsstillingar
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Sími > Símtöl.
Veldu úr eftirfarandi:
● Senda mitt númer — Birtir símanúmerið þitt þeim sem
þú hringir í.
● Birta símanúmerið mitt — Birtir netsímanúmerið þitt
þeim sem þú hringir netsímtal í.
● Símtal í bið — Stilltu símann þannig að þú fáir tilkynningu
um símtöl sem berast þegar þú ert að tala í símann
(sérþjónusta).
● Netsímtal í bið — Stilltu símann þannig að þú fáir
tilkynningu um netsímtöl sem berast þegar þú ert að tala
í símann.
● Netsímtalstónn — Veldu Kveikt til að stilla tækið þannig
að það tilkynni um netsímtöl sem berast. Ef þú velur
Slökkt færðu aðeins tilkynningu ef þú missir af símtali.
● Hafna símtali með skilab. — Hafna símtali og senda
textaskilaboð til þess sem hringir.
● Texti skilaboða — Skrifa hefðbundin textaskilaboð sem
eru send þegar símtali er hafnað.
● Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða hafna
myndsendingu á meðan myndsímtali stendur.
● Mynd í myndsímtali — Birta kyrrmynd ef myndsending
á sér ekki stað í myndsímtali.
Símtöl
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
25
● Sjálfvirkt endurval — Stilltu símann þannig að hámark
10 tilraunir eru gerðar til að koma á sambandi við númerið
sem hringt er í. Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á
sjálfvirka endurvalinu.
● Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals á meðan á því
stendur.
● Samantekt símtals — Birta lengd símtals þegar því lýkur.
● Hraðval — Kveikja á hraðvali.
● Takkasvar — Lyklaborðssvar virkjað.