Símtali svarað
Til að svara hringingu ýtirðu á hringitakkann eða opnar
símann.
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Almennar > Opnun
og lokun síma til að svara í símann með því að opna hann.
Símtali er hafnað með því að ýta á hætta-takkann.
Til að slökkva á hringitóni í stað þess að svara símtali skaltu
velja Hljóð af.
Á meðan símtal stendur yfir og aðgerðin símtöl í bið
(sérþjónusta) er virk ýtirðu á hringitakkann til að svara nýju
símtali. Fyrsta símtalið er sett í bið. Ýtt er á hætta-takkann til
að slíta símtalinu sem er í gangi.