Hringt um netið
Þegar netsímaþjónustan er orðin virk er hægt að hringja úr
netsíma úr öllum forritum sem bjóða upp á venjuleg símtöl,
svo sem tengiliðalistann eða notkunarskrána. Flettu til
dæmis að tilteknum tengilið í tengiliðaskránni og veldu
Valkostir > Hringja > Netsímtal.
Til að hringja netsímtal í biðstöðu slærðu inn símanúmerið
eða vistfang og ýtir á Netsímtal.
1. Til að hringja netsímtöl í áfanga sem hefst ekki á tölustaf
skaltu ýta á hvaða númeratakka sem er í biðstöðu og ýta
svo á # í nokkrar sekúndur til að hreinsa skjáinn og skipta
úr númeraham í bókstafsham.
2. Sláðu inn netfangið og ýttu á hringitakkann.