Nokia 6710 Navigator - Snið

background image

Snið

Veldu

>

Stillingar > Snið.

Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og

aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði, umhverfi og

viðmælendahópa. Sniðið sem er í notkun sést efst á

heimaskjánum. Ef sniðið Almennt er í notkun birtist aðeins

dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja Valkostir > Búa til nýtt

og tilgreina stillingarnar.
Til að laga snið að þínum þörfum velurðu sniðið og svo

Valkostir > Sérsníða.

Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo Valkostir > Gera

virkt. Ótengda sniðið hindrar þig í að kveikja óvart á tækinu,

senda eða taka á móti skilaboðum, nota þráðlaust staðarnet,

Bluetooth-tengingu, GPS eða FM-útvarp. Það lokar einnig

öllum þeim internettengingum sem eru virkar þegar sniðið

er valið. Ótengda sniðið kemur ekki í veg fyrir að nýjum

þráðlausum staðarnetstengingum eða Bluetooth-tengingum

sé komið á seinna eða að GPS eða FM-útvarp sé endurræst.

Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum þegar þú notar

þessa möguleika.
Til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í allt að 24 tíma skaltu

fletta að sniðinu, velja Valkostir > Tímastillt og svo tímann.

Þegar tíminn er liðinn verður fyrra sniðið sem var ekki

tímastillt virkt aftur. Þegar snið er tímastillt birtist á

heimaskjánum. Ekki er hægt að stilla ótengda sniðið á tíma.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til velurðu Valkostir >

Eyða sniði. Þú getur ekki eytt forstilltu sniðunum.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,

svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á

tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að

hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að

hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að

skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn

lykilnúmerið.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

62