Nokia 6710 Navigator - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus

staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið

styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á

farsímanum og á netsímtölum. Tækið getur reynt að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu

netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu

við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á

þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti,

t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort

nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig

þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:
● Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
● Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í tækinu

þínu.

● Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði

í virkt snið.

2. Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn

og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3. Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði.

Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4. Styddu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið

getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta

símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.