Nokia 6710 Navigator - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í

vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki

nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða

hraðastýringu og loftpúðakerfi. Frekari upplýsingar er að

finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja

tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann að

valda hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega úr

skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé

rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima

vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið,

hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa skal í huga að

loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða

fylgihlutum fyrir á loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél.

Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað

hættu við stjórn flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.