Nokia 6710 Navigator - Um Ovi-samskipti

background image

Um Ovi-samskipti

Veldu

>

Internet > Tengiliðir.

Með Ovi-samskiptum geturðu verið tengdur fólki sem þú vilt

vera í sambandi við. Leitaðu að tengiliðum og uppgötvaðu

vini í Ovi-samfélaginu. Vertu í sambandi við vini þína –

spjallaðu, deildu staðsetningu þinni og viðveru og fylgstu

auðveldlega með því hvað vinir þínir eru að bralla og hvar

þeir eru staddir. Þú getur jafnvel spjallað við vini sem nota

Google Talk™.
Þú getur einnig samstillt tengiliði, dagbók og annað efni milli

Nokia-tækisins og Ovi.com. Mikilvægar upplýsingar eru

vistaðar og uppfærðar reglulega í tækinu og á vefnum. Með

Ovi-samskiptum geturðu haft tengiliðalistann eins og þú vilt

og treyst því að tengiliðir séu vistaðir á Ovi.com.
Þú verður að vera með Nokia-áskrift til að geta notað

þjónustuna. Búðu til áskrift í farsímanum eða farðu á

www.ovi.com í tölvunni.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi

þjónustuveitunnar að nota Ovi-samskipti. Upplýsingar um

gagnaflutningsgjöld fást hjá netþjónustuveitunni.