Gjaldmiðilsumreikningur
Veldu
>
Skipuleggj. > Umreiknari.
Veldu Gerð > Gjaldmiðill. Áður en hægt er að umreikna
gjaldmiðil þarf að velja grunngjaldmiðil og gengi. Sjálfgefni
grunngjaldmiðillinn er Heima. Gengi grunngjaldmiðilsins er
alltaf 1.
1. Veldu Valkostir > Gengisskráning.
2. Sjálfgefna heitið á gjaldmiðlunum er Erlendur. Til að gefa
gjaldmiðli nýtt heiti velurðu Valkostir > Breyta heiti
gjaldmiðils.
3. Settu inn gengi gjaldmiðlanna og veldu Lokið.
4. Í næsta einingarreit skaltu velja þann gjaldmiðil sem þú
vilt umreikna í.
5. Sláðu inn gildið sem þú vilt umreikna í fyrri
upphæðarreitinn. Hinn upphæðarreiturinn sýnir
sjálfkrafa umreiknaða gildið.
Til að breyta grunngjaldmiðlinum skaltu velja Valkostir >
Gengisskráning, síðan gjaldmiðil og Valkostir > Nota sem
grunngjaldm..
Þegar grunngjaldmiðli er breytt verður að velja nýtt gengi þar
sem allar fyrri gengistölur eru núllstilltar.