Nokia 6710 Navigator - Myndataka

background image

Myndavél. Þú getur einnig kveikt á

myndavélinni með því að ýta á myndatökutakkann.
Þetta tæki styður allt að 2592 x 1944 pixlar (5 megapixlar)

myndupplausn. Myndupplausnin í þessari handbók getur

virst önnur.
Taktu mynd með því að nota skjáinn sem myndglugga og ýta

á myndatökutakkann. Tækið vistar myndina í Gallerí.
Mynd er stækkuð eða minnkuð áður en hún er tekin með því

að nota aðdráttartakkana.
Tækjastikan veitir aðgang að flýtivísum fyrir mismunandi

atriði og stillingar áður og eftir að mynd er tekin eða

myndskeið er tekið upp. Veldu úr eftirfarandi:

Skipta yfir í myndatöku.
Skipta yfir í myndupptöku.

Velja umhverfisstillingu.

Slökkva á ljósi fyrir myndskeið (aðeins í myndupptöku)
Kveikja á ljósi fyrir myndskeið (aðeins í myndupptöku)

Velja flass-stillingu (aðeins fyrir myndatöku)
Virkja sjálfvirka myndatöku (aðeins myndir).
Kveikja á myndaröð (aðeins myndir).
Velja litatón
Stilla ljósgjafa.

Þeir valkostir sem eru í boði fara eftir stillingunni og þeim

skjá sem þú ert í. Skipt er aftur yfir í upphaflegar stillingar

þegar myndavélinni er lokað.
Til að sérsníða tækjastiku myndavélarinnar skiptirðu yfir í

myndatöku og velur Valkostir > Stilla tækjastiku.
Til að birta tækjastikuna áður og eftir að mynd er tekin eða

myndskeið er tekið upp velurðu Sýna tækjastiku >

Valkostir.
Til að sjá aðeins tækjastikuna þegar þú þarft þess velurðu

Valkostir > Fela tækjastiku.