Nokia Myndefnisþjónusta
Með Nokia Myndefnisþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að
hlaða niður og straumspila myndskeið frá mismunandi
myndveitum með pakkagagnatengingu eða um þráðlaust
staðarnet (WLAN). Hægt er að flytja myndskeið úr samhæfri
tölvu í tækið og skoða þau í Kvikmyndabankanum.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar að nota aðgangsstaði fyrir pakkagögn til
að hlaða niður hreyfimyndum. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
Þjónustuveitur bjóða ýmist upp á ókeypis efni eða taka gjald
fyrir. Kannaðu verðið á þjónustunni eða hjá
þjónustuveitunni.