Vafrað á vefnum
Veldu
>
Internet > Vefur.
Flýtivísir: Til að ræsa vafrann heldurðu 0 takkanum
inni á heimaskjánum.
Til að skoða vefsíðu skaltu velja bókamerki á
bókamerkjaskjánum eða slá inn veffang ( reiturinn opnast
sjálfkrafa) og velja Opna.
Sumar vefsíður geta innihalda efni, t.d. myndir og hljóð, og
til að skoða þær þarf mikið minni. Ef minni tækisins er á
þrotum þegar verið er að hlaða slíka síðu birtast ekki
myndirnar á síðunni.
Til að gera myndir óvirkar á vefsíðum bæði til að spara minni
og hraða upphleðslu vefsíðunnar, velurðu Valkostir >
Stillingar > Síða > Hlaða efni > Aðeins texti.
Til að slá inn veffang velurðu Valkostir > Opna > Ný
vefsíða.
Til að endurnýja efnið á vefsíðunni skaltu velja Valkostir >
Valkostir vefsíðna > Hlaða aftur.
Til að vista vefsíðuna sem verið er að skoða sem bókarmerki
skaltu velja Valkostir > Valkostir vefsíðna > Vista í
bókamerkjum.
Til að sjá lista yfir vefsíður sem skoðaðar hafa verið í þessari
törn skaltu velja Til baka (tiltækt ef kveikt er á Listi yfir fyrri
síður í vafrastillingunum og núverandi síða er ekki sú fyrsta
sem hefur verið heimsótt).
Til að leyfa eða hindra sjálfvirka opnun margra glugga skaltu
velja Valkostir > Valkostir vefsíðna > Loka f.
sprettiglugga eða Leyfa sprettiglugga.
Til að skoða flýtivísa korts velurðu Valkostir > Flýtivísar
takkaborðs. Til að breyta flýtivísunum velurðu Breyta.
Ábending: Ýttu einu sinni á endatakkann til að fela
vafrann án þess að loka forritinu eða rjúfa tenginguna.