Nokia 6710 Navigator - Öryggi tenginga

background image

Öryggi tenginga

Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk er

gagnasendingin á milli tækisins og netgáttarinnar eða

miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi gagnasendingar milli

gáttarinnar og efnisþjónsins (þar sem gögnin eru geymd).

Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og

efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna þjónustu,

líkt og bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni miðlarans er

ekki staðfestur eða ef tækið inniheldur ekki er rétt

öryggisvottorð. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr

þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu

hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.

Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn

verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð

svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma.

Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki

tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga

um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri

í raun eigandanum sem tilgreindur er.