Nokia 6710 Navigator - Hugbúnaðaruppfærslur

background image

Hugbúnaðaruppfærslur

Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum

möguleikum, bættum aðgerðum og aukinni virkni. Þú getur

hugsanlega nálgast þessar uppfærslur með forritinu Nokia

Software Updater PC. Ekki er víst að hugbúnaðaruppfærslur

séu tiltækar fyrir allar vörur eða mismunandi útgáfur af þeim.

Ekki er víst að öll símafyrirtækin hvetji til notkunar á nýjustu

útgáfum hugbúnaðarins.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa Nokia

Software Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft

Windows XP eða Vista stýrikerfi, háhraðatengingu og

samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á

hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel ekki til að hringja

neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að uppfærslunni

lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal

öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.
Hægt er að fá nánari upplýsingar og hlaða niður forritinu

Nokia Software Updater á www.nokia.com/softwareupdate

eða á vefsvæði Nokia í heimalandi þínu.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með

ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta beðið um uppfærslur

úr tækinu.
Tækið getur ef til vill leitað að nýjum hugbúnaðaruppfærslum

með forritinu Nokia Software Checker. Veldu

>

Stillingar > Hugb.uppf..

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

19

background image

Ábending: Til að skoða hvaða hugbúnaðarútgáfa er í

tækinu slærðu inn *#0000# á heimaskjánum.