Nokia 6710 Navigator - Aukin ending rafhlöðu

background image

Aukin ending rafhlöðu

Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga

úr endingu hennar. Til að spara rafhlöðuna skaltu hafa

eftirfarandi í huga:
● Eiginleikar sem nota Bluetooth-tengingu eða leyfa slíkum

eiginleikum að keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar

eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni. Slökktu á

Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.

● Eiginleikar sem nota þráðlaust staðarnet (WLAN) eða leyfa

slíkum eiginleikum að keyra í bakgrunni meðan aðrir

eiginleikar eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni. Slökkt

er á þráðlausu staðarneti í Nokia símanum þegar ekki er

verið að tengjast, ekki er tengt við aðgangsstað eða þegar

ekki er leitað að netkerfum. Til að spara rafhlöðuna enn

frekar er hægt að stilla tækið þannig að það leiti ekki eða

leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.

● Ef þú hefur valið Pakkagögn > Ef samband næst í

tengingarstillingunum og ef það er engin

pakkagagnatenging (GPRS) reynir síminn reglulega að

koma á pakkagagnatengingu. Til að lengja starfhæfan

tíma tækisins velurðu Pakkagögn > Ef með þarf.

● Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum þegar

þú ferð á ný svæði á kortinu en það eykur á orkuþörfina.

Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt niðurhal á nýjum

kortum.

● Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu

svæði verður tækið reglulega að leita að tiltækum

símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.

Gagnlegar upplýsingar

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

20

background image

Veldu

>

Stillingar > Stillingar og Sími >

Símkerfi.
Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í

símkerfisstillingum leitar tækið að UMTS-símkerfinu. Til að

láta símann nota einungis GSM-símkerfið velurðu

>

Stillingar > Stillingar og Sími > Símkerfi >

Símkerfi > GSM.

● Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum er

hægt að velja eftir hve langan tíma baklýsingin slekkur á

sér og stilla ljósnemann sem greinir birtuskilyrði. Veldu

>

Stillingar > Stillingar og Almennar >

Sérstillingar > Skjár.

● Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku.

Til að opna forrit sem þú notar ekki ýtirðu á

valmyndartakkann og velur forrit.

Gagnlegar upplýsingar

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

21

background image

4. Símtöl