Nokia 6710 Navigator - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til

notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800 og 1900 símkerfi og UMTS

900/1900//2100 HSPA símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar um símkerfi.
Tækið styður nokkrar tengingaraðferðir og eins og við á um

tölvur gæti það verið berskjaldað fyrir vírusum og öðru

skaðlegu efni. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða,

tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal setja

upp og nota þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum aðilum

sem bjóða upp á nægjanlegt öryggi og vörn, líkt og Symbian

Signed hugbúnað eða hugbúnað sem hefur staðist Java

Verified™ prófun. Þú ættir að íhuga að setja

vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað upp í

tækinu og tölvum sem tengjast við það.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á

netsíður þriðju aðila sem gætu gert þér kleift að nálgast slíkar

síður. Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki

stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast

slík svæði skaltu huga að öryggi og efni.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

7

background image

kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið

truflun eða hættu.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða

staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,

þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta

hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra mynda,

tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar

upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók

þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má

tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá

tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í

notendahandbókinni.